Sigríður Ósk
17.12.2006 18:04:31 / sigga90

Ég er hætt!!!!

Halló ég er ekki búin að vera beint að standa mig í því að blogga, þannig ég ákvað að hætta bara með þetta...

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2005 03:15:35 / sigga90

djöö að mar var rekinn heim!!!

jæja halló eru ekki allir í stuði?:) ég er það allavega ég er nýkomin af balli í Hofsós, en ég gat bara því miður verið mjög lengi:| en mar náði nú samt að dansa eithva:) vá hva mer þykir gaman á svona böllum þó ég hef nú ekki farið á mjög mörg böll:) en það er samt alltaf jafn gaman, en já mar var bara klagaður og þá þurfti mar víst að hlýða og koma sér heim en það er nú ekki alltaf létt að ná mér af böllum það þurfti nú bara ekkert meira en minna en 3 löggur til að koma manni heim, fyrist að draga mann ettir gólfinu og út og henda manni svo í löggubílinn;) neinei kannski ekki alveg, en ég var nú samt búin að hringja í Dóra frænda minn og biðja hann um að skutla mér en hann svaraði mér ekki, og þá var mér sagt að Villi frændi væri í bænum á löggubílnum þannig ég bjallaði bara í hann og bað hann að skutla mér en svo þegar í nálgaðist bílinn að þá tók ég ettir því að það  voru 3 löggur í bílnum með honum:) en það þurfti ekki að draga mig út og henda mér inn í bílinn bara svona svo það sé á hreinu:) en já mér fannst þetta bara mjög gaman þó þetta hafi verið stutt en það var þess virði8) en jæja nú er ég að pæla í að fara að sofa það er víst vinna í fyrramálið:S

síja

Sigga

P.S. þið meigið láta mig vita ef þið eruð að fara á einhver böll hérna í fyrðinum aldrei að vita nema mar skelli sér;) neinei bara léttur djókur í gangir:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2005 22:43:36 / sigga90

úr skólaferðalaginu

Jæja þá er mar kominn heim úr skólaferðalaginu, við fórum á reðursafnið (tippasafnið) á Húsavík og daginn ettir fórum við í hvalaskoðun en því miður sáum við enga hvali nema einn sem var í kílómeters fjarlægð og mar sá bara rétt svo hvar hann kom upp og fór attur niður:S en þetta var bara fínt skólaferðalag margt sniðugt brallað, t.d. fóru Sindri og Kristján í pílukast og svo á meðan Sindri skaut að þá fór Kristján bak við einhvern hól, en Sindri var dáltið óhittinn og skaut yfir hólinn og beint í hendina á Kristjáni, en það blæddi ekkert en hann bólgnaði bara dáltið:) en við ferðuðumst bara dáltið mikið í rútu en þá gat mar líka bara sofið dáltið í henni því mar fór ekkert alltaf eða bara aldrei snemma að sofa;) og við þurftum alltaf að vakna 7 eða 8 því við gistum í skólum, en ég er hætt að bulla í bili:)

Síja

Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2005 22:31:09 / sigga90

jellú

Blezzzar hva segir fólkið;) hva eru ekki bara allir í stuði?:) ég segi allavega bara fínt, mar er bara byrjaður í vinnuog ég byrjaði líka í bæjarvinnunni í dag og það var bara fínt, við  byrjuðum bara rólega sem var nátla bara mjög gott:D en ég var bara fram að hádeigi því ég var að fara að vinna hjá þeim á vatni. en jæja ég veit ekki hva ég á að segja meira í bili þannig ég heyri bara í ykkur seinna

bæsja

Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2005 21:55:27 / sigga90

JESSS

Loksins eru þessi próf búin og núna er bara skólaferðalagið á morgun og þá er maður eila bara komin í sumarfrí þegar skólaslitin eru búina á sunnudaginn:) VÁ hva það verður gott þegar skólinn er búinn:D en svo þarf maður bara að rayna að vinna sér inn einhvern pening í sumar;) og að vona að sumarið verði ekki of lengi að líða:) en ég er að pæla í að fara og klára að pakka niður

Síja

Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2005 22:58:04 / sigga90

Met mæting á fótbolta æfingu eða þannig

Góða kvöldið gott fólk hva segirð þið? En ég segi bara ágætt það er bara allt gott að frétta hérna út sveitinn sauðburður á fullu og svona fínerí, en ég vona samt að sumarveðrið fari líka að koma, maður er að verða dálítið leiður á að það er að koma bara svona sliddu snjór til að bleita allt og gera skítugt en svo var ég á fótboltaæfingu áðan og í lok æfingar var farið að koma haglél og það var líka þessi met æfing alveg heilir 7 á æfingu;) þetta er nú óvenju fátt ég held að við höfum aldrei verið svona fáar í vetur kannski er þetta bara veðrið?!?! en maður var líka alveg hálf  frosinn svona eftir æfinguna þó maðru var að hlaupa. En núna er ég að pæla í að fara að reyna að fá hitann aftur í mig;)

Síja

Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2005 21:54:49 / sigga90

halló halló

Halló halló jæja þá er ég komin með heimasíðu, og ég vona bara að þetta eigi ettir að ganga bara ágætlega en ég á ettir að breita einhverju inná þessari síðu svona með tímanum;) en já núna er ég að pæla að fara að gera eithva aðeins í þessari síðu þannig ég bara heyri í ykku:)

síja

Sigga


» 1 hafa sagt sína skoðun